Aðalvalmynd

Auglýsing

New York

Ísland

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

100 dagar

30. október 2008 klukkan 02:23

Í dag fagna ég því að það eru nákvæmlega 100 dagar síðan ég lagði land undir fót.  Þessir 100 dagar hafa gjörsamlega flogið frá mér!

Núna nálgast óðum það sem Gvatemalabúar kalla "el fiambre" en þá fagna þeir öllum dýrlingunum, sem eru grilljón.. Hafa dýrling fyrir allt!  Ég er búin að kvíða þessum degi frá því að ég var á Ítalíu en þá sagði Pascal (hann var skiptinemi hjá þeim þegar hann var á mínum aldri) mér frá þessum degi með hrolli og var lýsingin hans nokkurnveginn á þennan veg "sko, þetta er bara svona skál með öllu í, öllu kjöti sem til er, öllu grænmeti sem þú getur ímyndað þér og rúmlega það og allskyns öðru gummsi."  svo sagði hann með mikilli hræðslu "reyndu að halda þér sem lengst frá heimilinu þennan dag!"  Ég bíð því með skelfingu eftir þessum degi.  Ég er reyndar orðin svo mikill anti-gikkur að það er ekki eðlilegt.  Þið heima sem þekkið mig vel eigið örugglega mjög erfitt með að trúa þessu en núna borða ég ALLT!  Ég ákvað það með sjálfri mér áður en ég fór út að segja ekki nei við neinu heldur smakka allt og ég er búin að standa við það.  Borðaði meira að segja ólífur í gær með bestu lyst og um daginn þegar við vorum í Mexico setti Jose Juan eitthvað gumms á diskinn minn og sagði mér að smakka..

Ég: " Hvað er þetta eiginlega?"
Hann: "Smakkaðu, svo skal ég segja þér það"
Ég: " Nújæja.. smjattsmjatt.. mm.. Vá, þetta er gott! Er þetta kjúlli eða?"
Hann: "Hérna, smakkaðu þetta líka"
Ég: "mm, þetta er ennþá betra.. Hvað er þetta?"
Hann:  "Fyrst borðaðiru kúarþarma og núna varstu að kyngja kúarspena"
Ég: "hahahaha.. Nei svona í alvöru, hvað er þetta?"
Hann:  "Ég er ekki að djóka"

Með þessu drakk ég svo einhvern hrísgrjónasafa sem var hreint afbragð!  Þetta er eitt af því sem ég elska hérna (ekki það að ég ætli einu sinni að hugsa um að borða þarma eða spena aftur), allt er nýtt svo vel.. Við Íslengingar erum orðin svo góð með okkur, borðum bara það besta.  Held að fólk fari samt að hugsa sig tvisvar sinnum um núna í kreppunni!


Annars þá gerðist ég svo stórtæk í vikunni og bætti við mig einum áfanga í fjarnáminu og þar sem að ég missti af heilum 7 vikum er ég ekki búin að gera mikið síðustu daga en að lesa um Grikki, endurreisnina og mótun vestrænnar menningar.  Leonardo da Vinci er samt búinn að eiga hug minn allan síðan á mánudaginn og er ég búin að skrifa þessa líka fínu ritgerð um hann.  Hann er idolið mitt núna þessi snillingur.  Núna er bara spurning hvort að ég verði ógeðslega mikið dugleg og taki meira fjarnám eftir áramót með því markmiði að fara aftur í gamla bekkinn minn í MA eða taki því bara rólega og verði með Ölmu sætustu og jafnöldrum mínum í bekk..


Núna er sumarið að ganga í garð hérna í Gvate, sem þýðir engin meiri rigning eða þrumur, pínu minni hiti, kannski svona um 30 gráður og fallegt sólsetur því að sólin sest við sjóinn.  Reyndar þá elska ég rigninguna hérna, það rignir svona ekta og mikið og maður verður svo blautur en samt ekkert kalt því að það er alveg logn og hiti og maður er fljótur að þorna.  En ég hreinlega verð að taka myndir fyrir ykkur af sólsetrinu á ströndinni, það er geggjað!  Og svo gaman að spila fótbolta á ströndinni á þeim tíma, allir heimsins litir á himninum.  Og talandi um fótboltaæfingar, Marisa bíður alltaf eftir mér á meðan ég er á æfingu og hún er farina ð vera með þegar við erum að hlaupa og gera svona æfingar.. Ekkert smá dugleg!  Og í dag sagði hún mér að hún ætlaði að kaupa sér sinn eigin bolta og að við ætluðum að æfa okkur saman á ströndinni hérna við húsið okkar (hún er sko svona 56 ára) :).


Alltaf er ég að fá ný og ný viðurnefni hérna.  Fjölskyldunni tekst þó ágætlega að bera fram nafnið mitt enda búin að eyða mörgum stundum í að æfa sig, hljómar samt soldið svona "Gúðrún". Hins vegar eru ekki allir svo þolinmóðir og finnst því upplagt að búa bara til nýtt nafn eins og til dæmis; Gú, Tjeila, G (á ensku), Dundun, Trúntrún og Gúðra.. Svo er náttúrulega sígilt að kalla mig canche, sem þýðir á góðri íslensku ljóska, og ennþá sígildara að kalla mig canchita, sem þýðir litla ljóska.  Ekki það að nokkur hérna hafi efni á að kalla mig litla, ég er bara helvíti hávaxin hérna miðað við alla.


Þó svo að Guatemala sé ótrúlega fallegt land eru hættur á öllum hornum og að meðal tali eru 15 manns beitt ofbeldi á einhvern hátt á dag.  Kona sem á hús hérna í nágrenninu, áttræð bótoxpía, kom í heimsókn í fyrradag og var að segja okkur frá því að dóttur hennar hafi verið rænt af einhverju gengi sem innihélt meðal annars garðyrkjumann sem hafði unnið hjá þeim í mörg, mörg ár.  Dóttirin er núna nýkomin til skila en það kostaði fjölskylduna mikla peninga að fá hana aftur.  Svo sagði hún okkur frá því að frændi hennar hafi verið myrtur af einu svona gengi og að sonur hennar hafi verið barinn í klessu af öðru!


Á morgun förum við svo í enn eina höfuðborgar ferðina..  Okkur var boðið í einhverja veislu en Marisa og Coco sögðu að það yrði ekkert gaman fyrir mig því að þar yrðu bara eldriborgarar svo að ég, Pedro og Patty (gvatebróðir minn og gvatemágkona mín) ætlum bara að skella okkur út að borða og í bíó eða eitthvað skemmtilegt. :)  Ekki það að ég myndi ekki falla inn í eldriborgarahópinn!


Jæja, ætli þetta sé ekki orðið gott í bili.

Sjáumst von bráðar.

Kv. Gúðra anti-gikkur.

 
mamma
Gúlún mín dúleg að blogga...gaman gaman gaman að lesa!! Ég trúi því varla að litli gikkurinn minn sé farin að japla á kúaspenum og þörmum...nú dámar mér!! knús...mamma.
#1
30. október 2008 klukkan 19:25
 
Svenni
mmm.. kúaþarmar og kúraspenar með smá kogga, gerist ekki betra..!:D
#2
30. október 2008 klukkan 21:43
 
AnnaMargrét
Haha, þetta er stelpan sem kúgaðist þegar ég spurði hvort hún vildi koma á Nings!

Í alvöru Guðrún, þú ert snillingur!
Þú ert really livin' it large.

Anna

p.s. She's just being Guðrún.
#3
31. október 2008 klukkan 11:00
 
maría björk besta-fænkan
-mamma þín er hérna við hliðina á mér að stjórnast og skipa mér "til" en mín er ekki viss að það komi til með að virka,
hef áður reynt að senda þér línu með ömmu og án ömmu, aðallega af því að við héldum að hún þyrfti hjálp frá sér yngri og vitrari, en þvílík vitleysa...

allavegana, það sem við allar vildum sagt hafa er að þú ert með eindemum yndisleg, afburða skemmtileg og fáranlega fyndin.

og kannski að öllum óvörum faktiískt,....

-klikkað skemmtilegt að lesa frá þér englakroppurinn okkar (allar móður systur hafa heilagt leyfi til að vera væmnar) gangi þér allt í haginn, eins og endranær
og hooooogggttuuuuuuuu í sambandi boltann - - - -

luuuuuv júú endlesslí "taumlesslí" og botnlesslí maría björk, magga-amma og HNOÐRI
#4
01. nóvember 2008 klukkan 01:51
 
mamma
eins og ég hef áður sagt þá er hún systir mín léttur yndislegur auli! hún vildi ekki trúa því að með því að setja inn staðfestingartölurnar myndi þetta virka. en nú játar hún sig sigraða. maría, til hamingju með að hafa sent guðrúnu minni kveðju loksins eftir 7 tilraunir og nú með minni aðstoð. það tók maríu að vísu 45 mínútur að skrifa þetta og stafsetningin á "englakroppi" vafðist fyrir henni. ég er að kenna henni á feisbúkk núna og eftir 3 tíma törn held ég að ég gefist bara upp þótt mér sé það ekki tamt!
ble ble blú...og ekki láta garðyrkjumanninn ræna þér...íííí...
#5
01. nóvember 2008 klukkan 01:56
 
Arnrún Bára
Ojjjjjjjjjjjjjjjj!!!!!!!!!! Kúaþarmar og spenar.... :S My advice to you, fáðu að vita hverju þú ert að fara að japla á áður en að þú setur það upp í þig ;) heheh...
En ég er alltaf græn af öfund þegar að ég les bloggin þín því að þú ert alltaf að gera e-ð spennó og skemmtó þarna úti með slöngunum og kakkalökkunum....
Vildi að ég gæti knúsað þig snúllan mín ;)
Luuuuv frá Akureyri ;* Sem að er ekki eins án þín!
#6
01. nóvember 2008 klukkan 10:19
vá gangster pleis Gðrún, passaðu þig á að vera ekki rænd, allvegna gæti enginn borgað þig úr ánauð því það er kreppa heima ;)
annars er ég ekkert smá ánægð með þig að hafa prófað þennann framandi mat og innilega til hamingju með 100 dagana ;) (ég er kominn með 70+) haha
#7
02. nóvember 2008 klukkan 18:39
 
Alma Dögg
Jájájá, hlakka þá til að fá þig til baka og vera til í allt ekki gretta þig og taka bita og gera kúgastsvipinn þinn og skirpa því og taka svo kannski annan bita því að það var allt í lagi :P

Elska þig beibí <3
#8
02. nóvember 2008 klukkan 20:37
Guðrún Halla Guðnadóttirmamma - Hehe, ég trúi því varla sjálf!
Svenni - Segðu..
Anna - Haha, þú hefur rétt fyrir þér.. I'm really livin' it large!
María frænka - Ég verð nú að hrósa þér fyrir það hvað þú ert orðin tæknivædd. Bloggcomment, facebook.. hvað verður það eiginlega næst? lovjú tú, knús til allra á afló.
mamma - Ég er stolt af því að eiga svona "inn" mömmu sem kann á tæknina í dag.. Meira að segja langt síðan ég fékk hringingu útaf vídjótækinu, er það fjarlægðin eða ertu orðin svona fær á því sviði líka?
Arnrún - I take your advice from now on.. Vildi líka að ég gæti knúsað þig! :* Tíminn er samt svo fljótur að líða, verðum farnar að halda júllupartý aftur áður er við vitum af. ;)
Jenný - Haha, já.. Verð að vera praktísk svona í kreppunni! En takk, og sömuleiðis sætasta! ;)
Alma - Ég hlakka líka til að koma heim og borða allt með brosi á vör. Elska þig meira!
#9
02. nóvember 2008 klukkan 23:44
 
mamma
hef bara ekki getað horft á dvd eftir að þú fórst þar sem það eru alltof margar fjarstýringar í gangi fyrir þetta allt saman. en er mjög góð í öllu hinu og best í að rista brauð! ást í poka sem ekki má loka því þá kemur þoka!
#10
04. nóvember 2008 klukkan 00:30
 
Alma Dögg
Hahahah ! hættu nú alveg :P

(já, ég hló upphátt)
#11
04. nóvember 2008 klukkan 16:18
 
Gunna Blöndal
Heil og sæl
Já já kúaþarmar og spenar...................spennandi
er það ekki svipað og þegar við bjóðum útlendinum að smakka svið (andlit) að maður tali nú ekki um súra hrútspunga...............
Hafðu það gott dúllan mín
gunnabl
#12
11. nóvember 2008 klukkan 19:07
 
Katrín
vá, ég myndi aldrei þora að smakka þetta!
en eins gott að þú sért dugleg að læra!:D
#13
11. nóvember 2008 klukkan 19:37

Skrifa athugasemd

Gvatemala

Prófíll

  • Nafn: Guðrún Halla Guðnadóttir
  • Staður: Puerto San Jose, Guatemala
  • Hjúskaparstaða: föstu