Aðalvalmynd

Auglýsing

New York

Ísland

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

sakn

16. nóvember 2008 klukkan 03:54

Mamma hefur alltaf rétt fyrir sér.  Hún sagði mér að ég yrði leið fyrr eða síðar.  Ég varð leið í fyrsta skipti síðan ég kvaddi Íslandið mitt í dag.  Hún bjóst hins vegar við því fyrr.  Ég er bara búin að vera að gera svo margt hérna og upplifa svo mikið á svo stuttum tíma að ég held að ég hafi ekki fengið tækifæri til þess að vera leið, þangað til núna.. Síðustu daga er ég búin að gera voðalega lítið annað en að vera heima með Marisu og Coco að gera bara alls ekki neitt sem hefur það í för með sér að ég fer að hugsa.. Aðalega hugsa ég um það hvað ég hef það ótrúlega gott.. Ég hef allt til alls!  Ég á frábæra fjölskyldu út um allan heim.  Ég á ekki bara mömmu og pabba, heldur á ég líka stjúpmömmu og stjúppabba sem ég elska ekki síður en mína líffræðilegu foreldra.. Það er ekki allt, heldur á ég núna hjón að sem hafa verið mér sem foreldrar síðustu þrjá og hálfan mánuðinn og munu vera það það sem eftir er af lífi mínu!   Ég er líka svo heppin að eiga full af systkinum af öllum stærðum og gerðum, albróður, hálfbróður, tvær hálfsystur, þrjá stjúpbræður og svo auðvitað þrjá gvatebræður sem mér þykir alveg ótrúlega vænt um.. Svo ég nefni nú ekki allar frábæru frænkur mínar og frændu, ömmur og afa og hvað þá æðislegu vinkonur mína og vini og yndislega kærastann minn.  Ég er ekki frá því að ég sé ríkasta manneskjan í heiminum!  Björgólfur Þór hvað?!  Allar þessar hugsanir láta mig samt fá dálitla heimþrá.. Get samt ekki kallað það heimþrá því að mig langar bara alls ekkert heim eins og er, frekar svona vina- og fjölskylduþrá.  Get ekki beðið eftir að knúsa allar þessar manneskjur sem ég elska og er ég staðráðin í því að vera duglegari við að heimsækja og vera í sambandi við þá sem búa í burtu frá mér og taka aftur upp þráðin við vini sem að eru að renna úr greipum mér..  Þeir eru of mikilvægir til þess að ég geti leyft þeim að ganga í burtu bara sí svona!  Ömurlegt að ég hafi þurft að ferðast alla leiðina til Guatemala til þess að átta mig á því..

Allur þessi tími sem ég hef haft til að hugsa lét mig líka taka ákvörðun um það að vera ekkert að reyna að halda áfram í gamla bekknum mínum heldur bara taka því rólega og njóta lífsins hérna úti.  Ég hef alltaf verið á svo mikilli hraðferð í lífinu, hef verið ári á undan í skóla síðan ég var 11 ára, fermdist 12 ára og var 15 ára þegar ég flutti af heiman.  Núna ætla ég bara að lifa lífinu hérna úti og fara svo í bekk með jafnöldrum mínum þegar ég kem heim aftur.. Ég elska líka skólann minn og ég veit ekkert hvað ég ætla að gera að honum loknum, vona að 2 ár gefi mér nægan tíma til þess að ákveða framhaldið. :)

Lítur út fyrir það að ég sé búin að taka upp dramatíkina sem ríkir hérna í Mið-Ameríku.. Mér finnst ég alveg mega vera pínu væmin samt sem áður. :)  Dramað gefur mér samt ekkert frí hérna í Gvate þó svo að ég sé hætt í skólanum.  Ég fæ reglulega hringingar frá skólafélögum um það hvað þau sakni mín og ef ég rekst á þau á ströndinni eða niðri í bæ þá kalla þau nafnið mitt og koma hlaupandi og knúsa mig eins og við höfum gengið í gegnum súrt og sætt saman.  Fólki hérna tekst líka alltaf að koma með eitthvað drama við öll tækifæri hvort sem það snertir það hvað eigi að vera í hádegismat eða hvort að viftan eigi að vera í gangi þegar við horfum á sjónvarpið eða ekki.

Ég fór í skemmtilegasta barnaafmæli sem ég hef á ævi minni farið í síðustu helgi, en Esteban varð 4 ára.  Barnaafmæli eru engar smá athafnir hérna og reyndar öll afmæli og aðrir atburðir.. Alltaf rosa veislur og gaman við minnstu tækifæri!  Afmælið hans var haldið í sal í Xetulul, skemmtigarðinum sem Jose Juan er forstjóri yfir, með engum smá veitingum og skemmtikröftum.  Ég fékk líka einkakennslu frá 2 trúðum í að gera svona boltalistir.. Ég gafst reyndar upp eftir að ég dundraði einum bolta í Martin bumbubúann hennar Mendyar.  Mikið erfiðara en það lítur út fyrir að vera!

Í desember ætla ég að búa í 3-4vikur hjá Jose Juan og Mendy og fara á einhver námskeið og taka danskennslu hjá stelpunum í sirkusnum í Xetulul.  Svo vilja þau endilega að ég taki þátt í einni sýningu, haha.. Sjáum nú til með það!

Um daginn fóru Marisa og Coco á markaðinn en ég ákvað að vera heima þar sem að ég var að læra.. Stuttu seinna komu þau heim og kölluðu á mig og þegar ég kom út stóð Marisa með Iguana flykki í höndunum sem að þau höfðu keypt á markaðnum.  Fólk kaupir þessi dýr til þess að borða en þau keyptu það bara til þess að hafa í garðinum.  Eftir dágóðan tíma tókst þeim að plata mig til að halda á honum í smá tíma til að ná einni mynd.. Sú mynd segir meira en þúsund orð um líða minn á þeim tímapunkti!  Honum var svo gefið það fallega nafn Eiður (ekki mín hugmynd) og býr hann núna í tréi rétt fyrir utan gluggann minn..

View Raw Image" href="http://s4.tinypic.com/rmlch5.jpg">

Á morgun byrjar svo loksins þetta stóra fótboltamót og er fyrsti leikurinn á okkar heimavelli í fyrrmálið.. Ég hugsa reyndar að ég geti ekki verið með þar sem að það lítur út fyrir að ég hafi rifið hægri kálfavöðvan minn á æfingu í gær og þar að auki með hælsæri á báðum hælum.  Ætla samt að hita upp og sjá hvernig ég verð eftir það. :)

Ég set inn nýjar myndir núna í kvöld eða á morgun.

Hasta Luego
Guðrún Halla

 
mamma
Duglega, yndislega, sterka stelpan mín...við hér heima elskum þig heitt og dáumst að þér úr fjarlægð en erum við hliðina á þér í hjartanu...mamma
#1
16. nóvember 2008 klukkan 11:25
Til hamingju með nýja gæludýrið, þetta er sko krútt dýr, samt örugglega ekkert svona til að knúsast með beint.. annars gangi þér vel og haltu áfram að vera sterk.. eftir rigningu kemur jú víst alltaf sól :D
#2
16. nóvember 2008 klukkan 15:18
 
AnnaMargrét
Guðrún
Ég vil vera væmin núna.
En ég ætla að vera væmin í tölvupósti.

Elska þig mestast(L)

Anna
#3
16. nóvember 2008 klukkan 16:33
 
maría björk besta-fænkan
æ, hvað mín er að verða fullorðin....
ég man nú eftir ykkur me -þar sem stærsta vandamál dagsins var hvort þú eða hún fengi að sitja í miðjunni afturí bílnum og þar sem þú varst oftast sú skynsama fékk sú sem alltaf talaði út í eitt að ráða....eins og það hefði verið í síðust viku.
alltaf svoooo gaman að lesa pistilinn þinn og skoða myndirnar
þú ert greinilega snjall penni "ala hún í sex in the city" og átt framtíðina fyrir þér í hverju sem er,
-söknum þín örugglega meir en þú okkar,
ástarkveðjur úr vesturbænum og þó þú sért komin í fóboltlið í útlöndum eins og hinar íslensku stjörnurnar ertu ávalt velkomin í KR....thí híhí
#4
16. nóvember 2008 klukkan 18:46
 
Hjöddi
Hæ krúttið mitt og takk fyrir fallegt blogg. Þið eruð nú svolítið sætar saman þú og eðlan báðar pínu hræddar. Litlu krílin herna í Hnjukashlíð dafna vel og ekki langt að bíða að þeir fari að opna augun. Sakna þín mikið en líka gaman að heyra hvað þú ert í góðum gír. Knús Fóstri Bóndi
#5
16. nóvember 2008 klukkan 20:43
hæ elskan mín:)
Mér líður vel að þú sért búin að hafa svona gaman:D
En ég skil þig þegar það er ekkert að gera þá fer maður að hugsa heim:) en við verðum bara saman í bekk á næsta ári með þínum jafnöldrum;)
En gaman að fylgjast með þér og heyrumst aftur elskan:)
Love<3
#6
17. nóvember 2008 klukkan 15:53
 
Alma Dögg
1. ég elska þennan svip og sakna hans óneitanlega.
2. ég elska þig alveg líka og sakna þín. <3
#7
17. nóvember 2008 klukkan 19:19
Elsku litla systir
Ég fæ gæsahúð og tár í augun að lesa bloggið þitt. Þú ert svo skynsöm og heilbrigð í hugsun.
Já það er alveg rétt hjá þér að nota tímann vel þarna úti og njóta hans sem mest þú mátt. Árið verður liðið áður en þú veist af og ekki víst að svona tækifæri bjóðist aftur....annars veit maður nú ekki með þig....orðin svo veraldarvön og mikil hitabeltisdiva. Þú sest kannski að á þessum slóðum með einkafótboltafélag og furðuleg gæludýr, japplandi á þörmum af bestu lyst. Komdu nú samt heim á milli og leyfðu okkur að knúsa þig xxx
#8
17. nóvember 2008 klukkan 23:15
æjji ég fékk tár í augun á að lesa þetta blogg :( etta var rosalegahjartnæmt!
sakna þín líka og það er kannski satt.. við þurfum kannski að styrkja samband okkar betur, svo samband okkar rennur ekki úr greipum okkar.

en yfir í annað..

ÓGEÐSLEGA FYNDIN MYND AF ÞER OG EÐLUNNI HAHAHA!!!
#9
18. nóvember 2008 klukkan 09:08
 
Katrín
oh, langaði svo að fá þig í bekkinn aftur! en ég skil þig samt alveg fullkomnlega!! myndi held ég ekki nenna að stressa mig á svona miklu að læra.. í gegnum tölvu! en við förum þó allavega í útskriftarferð saman:D. elska hvað er gaman hjá þer þarna úti og get ekki beðið eftir að hitta þig loksins!;*;*
#10
18. nóvember 2008 klukkan 21:14
 
Stóri B
Það er svoo gaman að lesa bloggið þitt Guðrún! Get ekki beðið eftir heimkomunni og sögunum sem því fylgja!
- Tóti bróðir
#11
20. nóvember 2008 klukkan 02:25
 
Karó
haha ótrúlega fyndin mynd!

sakna þin :*
love
#12
21. nóvember 2008 klukkan 18:45
Koss og knús. Væri til í að hafa þig með á palladjamm í kvöld.. en væri samt meira til í að koma í heimsókn !!
Æðislega fallegt blogg Gussa mín, ég sakna þín og hlakka til að fá þig heim! En ég öfunda þig samt af þessum ævintýrum.. átt aldrei eftir að gleyma þessu :)

ást á þig.

p.s. allt þér að þakka að ég náði landafræðiprófi um daginn því ég mundi hvar gvatemala var útaf þér ;)
#13
22. nóvember 2008 klukkan 17:44
Guðrún Halla Guðnadóttirmamma - ég elska þig.
jenný - nei, þú hefur rétt fyrir þér! eiður er ekkert alveg mesti kúrarinn.. en já, á eftir rigningu kemur sól. :)
anna - elska þig líka og takk fyrir tölvupóstinn sætasta.
maría - ekki slæmt að vera líkt við carrie, hehe! aldrei að vita hvað tekur við eftir minn stórfenglega fótboltaferil hérna úti. ;)
hjörtur - sakna þín líka gamli.. geymdu eitt kríli fyrir mig. :)
kara - jám, en mætum samt í öll partý hjá fína gamla bekknum okkar! ;)
alma - jájá, ég elska þig alveg eitthvað líka..
margrét systir - hehe, aldrei að vita! hvað sem ég tek mér fyrir höndum þá lofa ég samt að koma reglulega heim og knúsa ykkur. :*
margrét erla - hehe sæta, sakna þín!
kata - ég lofa þér því að þó að við verðum ekki saman í bekk þá verðiði sko ekki laus við mig. ;) hlakka svoo til að fá að knúsa þig og hina aftur!
brósi - sakna þín!
karó - sakna þín líka, gott að tala við þig áðan. :*
þura - endilega komdu í heimsókn, það yrði svo gaman! reyndar alveg frekar langt og dýrt ferðalag, sérstaklega núna með einhverju kreppuverði! sakna þín líka sætustu og gott að ég hafi hjálpað þér með landafræðiprófið. :) og til hamingju aftur með afmælið í gær!
#14
22. nóvember 2008 klukkan 20:54
 
amma sín
elsku gullð mitt
gaman að lesa allt sem þú hugsar.hugsanir þínar og spekúlasjónir eru fallegar og tærar eins og þú. Guð blessi þig elsku blómið mitt. amma þín.
#15
25. nóvember 2008 klukkan 20:53
 
besta frænkan sem þarf ekki að segja til nafns
Hvaða skot eru þetta á mig að ég sé meiri frekja? Auðvitað er það ekki satt.
En gaman að lesa frá þér stóra frænkan mín. veit þú saknar mín ábyggilega mest af öllum en þarft ekki að örvænta því koma tímar, koma ráð. ég sannfæri múttu að koma til þín von bráðar og það er náttla kökubiti að sannfæra móður þína.
En við skulum ekki missa okkur í dramanu.. Hlakka til að sjá þig snúlla og þurfum að fara að plana Landsmót 2010, kaupa okkur tjald og svona. það er nú gott að ég er ennþá með þau Þórdísi yndislega gjaldkerann okkar, Thelmu wannabe busy, Regínu sem reyndist vera ágæt eftir erfiða uppsetningu á knapafötunum og legendið Gvend Skalla í símanum mínum!
#16
28. nóvember 2008 klukkan 00:58
Guðrún Halla Guðnadóttiramma mín - takk amma, gaman að tala við ykkur á skype um daginn. :)
margrét erla - vá, nenniði í alvöru að koma í heimsókn til mín? allavega þú.. það yrði ekkert smá gaman. og já haha, landsmót 2010 er bókað og helst 2009 líka, það var svoo gaman og þetta líka fína fólk að vinna með okkur.. er ekki frá því að ég sé líka með þessi númer ennþá í íslenska símanum mínum.
#17
28. nóvember 2008 klukkan 01:11
 
Arnrún Bára
Ég sakna þín ógurlega mikið snúllan mín.. Vildi að ég gæti komið í heimsókn!!!!!
Ég vildi það SVOOOO mikið!!!!! :(
En þú ert hetja að vera þarna úti...

Vildi deila þessu með þér sætust...
http://myndir.hshphoto.net/albums/view/album/Studio+HSH+Lit/image/1581
Það vantaði bara þig! Við söknuðum þín ógurlega mikið!

Endalaus ást og billjón knúsar!!!

Arnrún...
#18
02. desember 2008 klukkan 14:59
 
hildur systir
elsku gullinsnúður,

ohh ég veit svo vel hvernig þér líður, það er svo erfitt að vera lengi í burtu frá fólkinu sínu.. en ég get líka lofað þér að það alltaf jafn yndislegt að koma svo heim til íslands og knúsa alla og kjassa jafnvel þótt langt hafi liðið frá síðasta knúsi. það þarf sko meira en nokkra kílómetra fjarlægð til að deyfa alla ástina sem þú talaðir um! við erum öll alltaf til staðar fyrir þig litla hetju systir mín!
(miðað við væmnina í mér mætti halda að ég væri í suðlægara landi en þýskalandi ;))

en góð hugmynd að taka því aðeins rólega í skólanum. það liggur ekkert á, og um að gera að njóta tímans bara í botn þarna úti. þetta tekur nebblega meira á en maður gerir sér grein fyrir - að læra nýtt tungumál frá grunni + læra inná ólíkt samfélg o.s.frv.

en það er svo sannarlega alltaf gott að lesa frá þér hressandi blogg með krassandi sögum til að slá á söknuðinn!

súper dúper knús og kossar
hildur
#19
03. desember 2008 klukkan 20:40
hæ sætasta guðrún mín, vá hvað ég skil þig. Þo að það sé ótrúlega gaman, þá hættir maður ekki að sakna fólksins heima. Fékk líka svona tímabil og fannst ég svo tóm eitthvað...
een þú ert svo sæt og dugleg elskan mín.. haltu áfram að njótalífsins í mið ameríkunni og hafðu það sem allra allra best... Rústum næsta vetri og verðum duglegar að gera eitthvað saman stelpurnar sem fóru út þennan veturinn...
ást;*
#20
05. desember 2008 klukkan 15:01
 
Svava Rut
Æji Guðrún þú ert yndisleg !:*
Sakna þín óendalega mikið ! Við verðum að fara að hittast meira:) og hver veit nema ég flytji á akureyri þá erum við nær hvor annari:D
Sakna þín MESTAST!
Æðislegur svipur þarna á ferð :)
#21
05. desember 2008 klukkan 20:51
Guðrún Halla Guðnadóttirarnrún - æj þið öll svo fín á árshátíðini. :) vildi líka að þú gætir komið snúlla, elska þig!
hildur systir - þú hefur svo rétt fyrir þér systir góð.. vá hvað það er langt síðan ég sá þig, sakna þín!
inga bryndís - takk sæta, það er svo ótrúlega gott að vita af fleira fólki sem er að takast á við svipað.. og já, við verðum að vera duglegar að gera eitthvað saman við ferðalangarnir. ;*
svava - sakna þín líka sætust. :)
#22
05. desember 2008 klukkan 22:09

Skrifa athugasemd

Gvatemala

Prófíll

  • Nafn: Guðrún Halla Guðnadóttir
  • Staður: Puerto San Jose, Guatemala
  • Hjúskaparstaða: föstu