haha æjjji vá... þú ert eins og eitthver stjarna þarna úti!
gaman fyrir þig .. en er það ekki stundum pínu þreytandi ?
ef eg .ekki þig rétt þá kemur þýskan um leið og þú lest eitthvað yfir hana :) þú átt eftir að standa þig
sakna þín ;*
Salsa
06. desember 2008 klukkan 23:13
Ég vil byrja á því að þakka ykkur fyrir öll kommentin.. Endilega haldið svona áfram, alveg ótrúlegt hvað eitt lítið komment getur gert mann glaðan þessa dagana. :)
Annars er lítið að frétta síðan síðast. Er í prófum núna í fjarnáminu, búin með sögu og líffræði og gekk bara frekar vel í báðum held ég.. Svo er það þýskan á miðvikudaginn. Allri þeirri þýsku sem að ég hef lært síðast liðin ár hefur verið sópað burt með allri þessari spænsku svo að ég veit ekki hvernig það á eftir að fara. Eina markmið mitt er að ná þessum áfanga því að þá get ég sagt bless við þýsku það sem eftir er af lífinu.. En samt ekki, mig langar að læra hana alveg og vera þá í þýskumælandi landi en ekki í skóla á Íslandi þar sem ég gleymi öllu um leið og ég labba út úr stofunni. Ég get þó státað mig af því að ég er næstum því orðin altalandi á spænsku.. Það er svo góð tilfinning!!
Ég og Marisa gerðumst svo djarfar um daginn að skrá okkur í dansskóla í Guate (höfuðborginni) svo að við keyrum núna reglulega þangað til þess að læra salsa, merengue og aðra latínó-dansa. Ekkert smá gaman! Ég er líka orðin eitthvað idol þar.. Marisa hringdi um daginn til þess að tjékka á einhverju, byrjaði á því að kynna sig með nafni og þá heyrðist frá karlinum í símanum "Já, sú sem kemur alltaf með Guðrúnu?". Ég vil meina að það sé af því að ég sé yfirburða salsa-dansari, annars veit ég ekki..
Eftir fótboltaæfingu um daginn fór ég með þjálfaranum mínum, Marisu og Coco til þess að ná í nýju búningana okkar sem að við erum búin að vera að bíða eftir í rúma 2 mánuði eða svo. Ég hélt að þetta væri svona bara að skjótast og ná í þá og keyra svo heim en svo var þetta rosa athöfn, eða allavega meira en ég bjóst við. Fyrirtækið sem gaf okkur búningana (sem voru gerðir eftir minni hönnun) er svona rafmagnsfyrirtæki og við þurftum að skrifa undir ýmis plögg og fá armbönd til þess að komast inn og auðvitað hjálma líka. Ég mætti þarna nýkomin af æfingu, sveittari en hlöllabátur og rauðir í framan en Tómas sjálfur tómatur og grái hjálmurinn var bara til þess að setja punktinn yfir i-ið. Ég þurfti svo að skrifa undir einhverja pappíra þarna en ég veit reyndar ekkert hvað ég var að skrifa undir, verð að fara að fá mér lögfræðing.. Svo tók við þessi líka skemmtilega myndataka, fyrst af mér og þjálfaranum mínum að taka við búningunum með yfirmönnum fyrirtækisins og síðan vildu allir sveittu karlarnir þarna eiga mynd af sér með mér til þess að hengja upp í skrifstofunni sinni. Búningarnir eru mjög fínir, bleikir og grænir hehe. Fengum líka sokka, skó og bolta! Annars þá gengur mótið rosa vel, erum búnar að spila 2 leiki.. Unnum fyrsta 15-0 og seinni 4-3. Þriðji leikurinn er svo á morgun en ég veit ekki hvort að ég spila því að Pedro átti afmæli í fyrradag og verður haldið upp á það á morgun í Guate.
Talandi um afmælisveislur.. Fólk hérna heldur alltaf upp á afmælið sitt með promp og prakt hvað sem það er gamalt. Alfonso varð 59 ára í nóvember og húsið fylltist af gestum þó að það væri virkur dagur og það var veisla langt fram á kvöld. Það er líka slegið upp í veislu við hvert tækifæri sem gefst og er ég farin að halda að þessir dýrlingar, sem eru óteljandi margir hérna, séu bara afsakanir til þess að koma saman og fá sér í aðra tánna. Samt rosa gaman og svo mikill fjölskylduandi sem skapast.
Jæja, ég ætla að segja þetta gott í dag.
Er að vinna í því að setja inn nýjar myndir í október&nóvember albúmið.. Myndirnar eru bara alltaf svo lengi að upload-ast og ég get ekki sagt að ég sé sú þolinmóðasta.

jenný - ég skal með glöðu geði taka þig í salsa tíma, en það er reyndar kominn biðlisti.. kannski ég fari bara að stofna bissness út á þetta. ;) En nei, ég ákvað bara að taka smá fjarnám þar sem að ég er ekki í skóla hérna til að létta á 3.bekk..margrét - það er alveg rosalega þreytandi reyndar, langar bara til þess að falla inn í hópinn.. en takk! sakna þín líka sætust :*
#3
08. desember 2008 klukkan 00:45
AnnaMargrét
Djöfull verður þú farin að geta hrist rassinn á sjallaferðunum þegar þú kemur heim! Samt örugglega ekki betri en ég var og er, maður er náttrúrulega eitthvað booty shakin' idol hér á landi.
Vá ég elska nýja þríeykið! Langar bara að knúsa þessa hvolpa (samt bara varlega).
Knús
Annan

#4
08. desember 2008 klukkan 11:08
Svava Rut
Ég skemmti mér alltaf jafn mikið að skoða bloggin þín :) Þú ert alveg frábær penni.
Hefurðu það ekki bara fínt úti elskan:*?
Sakna þín:'(
Kv:Svava

#5
09. desember 2008 klukkan 03:31
mamma
Þú tekur mig í kennslu í vor, sheik it búkí, í stofunni heima...ég fæ að taka smá diskó takta með...annars fer að vanta þig því Katla hefur ekki fengið bað síðan þú fórst! Stóri B er að fara til London á laugardaginn að keppa í Global Battle of the Bands. Hjörtur er alltaf á fullu við allt...ég hengdi upp jólaseríur á Aðalgötuna um daginn og setti fallega hjartaseríu í gluggan þinn. Elska þig og bloggið þitt skemmtilega. mamma.
#6
09. desember 2008 klukkan 20:57
Eydís Franzdóttir
Hæ Guðrún.
Frábært, bara slærð innfæddum út sem salsa sjarna! Örugglega gott að vera góður dansari í öllum þessum veislum. Vona að þýskan hafi gengið bærilega. Allt fínt að frétta úr kotinu. Jólaannirnar í tónlistinni á fullu og fer til Færeyja um helgina að spila. Langar til að setja smáræði í póst til þín. Nennirðu að senda mér heimilisfangið þitt?
Ástar kveðja, Eyda.

#7
10. desember 2008 klukkan 23:28
Anna - Ég mun aldrei slá þér við í booty shakin', það er bara ekki mögulegt!Svava - Takk, sakna þín líka. :)
Mamma - Ég skal með glöðu geði kenna þér, svo lengi sem að þú tekur ekki upp diskógallan, hehe. Þið eruð öll svo dugleg þarna heima, elska ykkur!!
Eyda - Gott að heyra að það sé nóg að gera, þú ert alltaf svo dugleg. Heimilisfangið mitt er:
Guðrún Halla Guðnadóttir
47 Calle 5-56 Zona 12
Guatemala 01012
Guatemala
Annars er pakki algjör óþarfi, hugskeyti meira en nóg. ;)
#8
14. desember 2008 klukkan 03:04
Sæta:)
gaman að lesa allt þetta:) verð að heyra meira í þér! það líður svo langur tími frá því ég heyri í þér:P
Er anna ekki búin að segja þér frá hönkinu sem var að reyna við hana á Sjallanum um helgina:D? haha
En annars elska þig :** er búin að safna 250þús til að komast til þín ;) (eða ég vil halda því fram:P)

#9
15. desember 2008 klukkan 11:10
Alma Dögg
Ég held að þú þurfir að taka mig og Önnu í danskennslu :)
Og gangi þér vel með það ..
En gaman að heyra hvað þér gengur vel í fótboltanum og öllu hinu.
elska þig
Danskveðjur, Alma <3

#10
18. desember 2008 klukkan 00:19

Annars afhvjeru ertu í fjarnámi,? Ættlaru að fari í 4.bekk þegar þú kemur heiim??