Góðir tímar
Úff, 3.skiptið sem að ég reyni að skrifa þessa færslu.. Tölvan mín er eitthvað að klikka þessa dagana og er búin að vera dugleg við að loka því sem að ég er að gera á netinu, mér til mikillar gleði auðvitað.
Allavega, búin í prófum úr þessum 3 áföngum sem ég tók í fjarnáminu og ég er bara nokkuð ánægð.. Hrópaði af ánægju yfir sjöunni minni í þýsku. :D Svo mikill léttir að vera búin með þetta.
Daginn sem ég átti að fara í þýskuprófið var ég vakin klukkan hálf 6 um morguninn við hringingu frá Íslandi. Þeir sem þekkja mig vita vel að ég á það til að vera rugluð þegar ég er vakin og einnig á ég það til að rugla draumunum mínum saman við veruleikann. Ég svaraði þess vegna í símann á spænsku og bað konuna sem var á hinni línunni vinsamlegast ekki um að trufla mig þar sem að ég væri að gera við viftuna mína.. Hún var þó ekki svo heppin að fá að skilja ruglið í mér þar sem að ég kom bara upp spænsku. Eftir nokkrar stundar rugling fór ég aðeins að átta mig á því hvað væri í gangi og konan nánast farin að öskra nafnið mitt, hjartað mitt fór þá á fullt og ég var viss um að þetta væri amma mín að hringja til þess að láta mig vita að eitthvað hefði komið upp á heima.. Þegar hún var búin að fullvissa mig um að hún væri ekki amma mín og enginn væri slasaður tókst henni að þagga niður í mér og koma sér að efninu, þetta var þá skólastýra Verzlunarskólans að segja mér að hún hafi óvart sent vitlaust próf en núna væri það rétta komið, óskaði mér síðan góðs gengis í síðasta prófinu mínu og kvaddi með pínu flissi. Ég er viss um að ég hafi verið umræðuefnið á kennarastofunni þennan dag!
Þennan sama dag var æfing og áttum við að fara í ræktina, sem við gerum núna vikulega.. Það sem tók við mér var pínkulítill salur (kannski svona 1/3 af Vaxtaræktinni á Akureyri) gluggalaus og þar með loftlaus, fullur af sveittum steratröllum. Á veggjunum héngu svo myndir af afar fáklæddum latínó gæjum og píum og tónlistin þarna inni var svo há að ég heyrði ekki í mér hugsa, auðvitað bara eðal rokk í salsa búning. Lyktinni á ég erfitt með að lýsa, en hún situr enn föst í nefinu á mér. Ég var þarna eins og versta gelgja og lagði handklæðið mitt alltaf vandlega á tækin, sem ég er handviss um að hafi verið heimatilbúin mörg þeirra, svo að ég þyrfti ekki að snerta þau því að mér var sagt áður en ég færi að hætta væri á að smitast af lifrabólgu á svona stöðum og ég var ekki tilbúin til þess að taka þá áhættu. Okkur var svo þrælað þarna af þessum steratröllum í 2 klst og voru þeir sko ekki tilbúnir að gefa neitt undan. Ég var með strengi í 4 daga eftir og held að ég hafi aldrei á ævi minni svitnað svona, mér fannst mikill léttir að komast út í 35 stiga hitann og fá mér ferskt loft.
Daginn eftir átti ég svo æðislegan dag! Jose Juan, bróðir minn, bauð mér og öllu fótboltaliðinu í garðinn sem hann stjórnar, sem var einmitt um daginn að vinna "besti skemmtigarður í heimi". Við vöknuðum allar klukkan 5 og fórum saman í svona rútu, sem Guatemalabúar kalla "chicken-bus". Aldrei hef ég kynnst eins morgunhressu fólki, dönsuðum og sungum alla leiðina.. Svo þegar við komum byrjuðum við á því að fara í vatnsrennibrautagarðinn og skemmtum okkur allar svo vel þarna. Þær voru samt flestar eitthvað feimnar við að vera svona fáklæddar á almenningsstað en það mátti ekki vera í stuttbuxum eða bol yfir.. Líka nokkrar sem að ákváðu bara að horfa á þar sem að trúin sem þær iðka leyfir þeim ekki að vera svona fáklæddar. Við áttum samt frábæra stund þarna saman og öll feimnin hvarf um leið og við byrjuðum að hlaupa um garðinn. :) Síðan forum við og borðuðum hádegismat í tívolí-garðinum og hlupum svo beint af stað til þess að ná að fara í sem flest tæki. Horfðum svo á töfra-sýninguna, sem er ótrúlega flott þarna, og stelpurnar misstu alveg andlitið.. Höfðu aldrei séð neitt svona áður. Þær voru allar svo ótrúlega glaðar og mér leið svo vel þarna með þeim. Þjálfarinn minn sagði líka í rútunni á leiðinni þangað að þessi ferð hefði aldrei orðið ef að ég hefði ekki byrjað að æfa með þeim og þetta lið ekki heldur og þær klöppuðu allar fyrir mér og knúsuðu mig. Það var svo góð tilfinning, mér leið virkilega eins og ég hafi gert eitthvað gott.. Þessar stelpur gera ekkert nema að vinna og sjá um heimilið og börnin og þær voru svo glaðar að komast í burtu og gera eitthvað skemmtilegt í góðra vinahópi.. Ég er fjölskyldunni minni hérna svo þakklát, þau eru öll svo yndisleg!! Svo svona til að toppa daginn þá gisti ég hjá Jose Juan og Mendy og knúsaði strákana mina og litla Martin svo hafði fæðst nóttina áður. :) Ég gat ekki hætt að brosa eftir þennan dag, erfitt að lýsa þessum tilfinningum.. Núna líður mér líka eins og hluti af hópnum en ekki bara hvíta, ljóshærða fríkinu.
Esteban og Joaquin komu svo með okkur heim til El Puerto daginn eftir og við stússuðumst aðeins fyrir jólin, skreyttum jólatréið og bökuðum piparkökur. Ég er samt ekki í neinu jólaskapi og held að það komi ekkert þetta árið. Ég kenni sólinni alfarið um það.. Og já, líka því að jólatréið er skreytt með skeljum! Marisa er samt svo ótrúlega krúttleg, gefur mér í skóinn á hverjum degi.. Í dag fékk ég ótrúlega krúttlega styttu, í gær hring og í fyrradag armband. :)
Á sunnudaginn fórum við til Palin, sem er lítill bær, til að keppa. Gerðum 1-1 jafntefli, sem var samt reyndar pínu ósanngjarnt þar sem að tíminn var löngu búinn þegar þær skoruðu.. Rúmar tíu mínútur. Ef ég skildi rétt þá erum við samt komnar í úrslit og verður úrslitaleikurinn á sunnudaginn. Við gerðum okkur svo glaðan, fórum á veitingastað og fengum okkur pizzu og löbbuðum svo um markaðinn þarna sem var á torgi með ótrúlega stóru og fallegu tréi í miðjunni sem gnæfni yfir allt.
Í gær fór ég svo aftur í ræktina góðu með steratröllunum og heimatilbúnu tækjunum en eyddi svo eftirmiðdeginu í að baka með Marisu.. Það er miklu skemmtilegra að baka þegar það er kona í vinnu við það að þrífa eftir mann. Ég er orðin alltof góðu vön hérna!
Ég tók þá ákvörðun að gefa engar jólagjafir í ár.. Þið eruð heppin ef þið fáið jólakort frá mér, sem verður þá örugglega ekki komið fyrr en í janúar. Annars þá sendi ég öllum hlý hugskeyti tímalega á aðfangadag! :)
Ást til ykkar
Gúdrún Hatla.
Annars bara Gleðileg jól og hafði það nú sem allra best þarna hinumegin við hafið.. í raun finnst mér jólin marka helming dvalar okkar enn næstum því.. svo stutt bara í það að við verðum aftur á skólabekk í MA.. jólakveðja frá Sviss(K)
Æj þú ert eitthvað það sætasta sem ég þekki.
En ég vil bara hafa það á hreinu að ég ætla ekki að þrífa eftir þig þegar þú kemur aftur til landsins! Bara svona ef þú bjóst við því. vorkenni vinnukonunni þinni frekar, svona þar sem ég þekki alveg hvernig það er að vera alltaf að þrífa eftir þig!!
Hey ég fann líka eitt snilla myndband sem þú tókst í penthousinu þar sem ég og Alma erum að slást! Og mér sýnist við í alvöru vera reiðar. God hvað það er samt fyndið myndband.
Æji! Þarf að segja þér einhverja snilla!
Sakna þín svo mikið.
þín að eilífu
Anna
Það verður rosalega skrítið að halda Guðrúnarlaus jól! það eina góða við það er að það eykur líkurnar mínar á að hreppa möndlugjöfina!
Hlakka til að fá þig heim!
-Tóti
en ég elska þig samt alveg og allt þannig :P
Oooooog hahahahhaha ég var alveg búin að gleyma þessu myndbandi og já, við erum svo fokkasjitta fyndnar.
Skil ekki fólk sem finnst það ekki ..
Ingi - Engar áhyggjur. :*Jenný - Takk sætust! Hehe, ég lofa engu með þýskuna en ég reyni mitt besta. En já, það er satt.. Mætti segja að jólin marki helming dvalarinnar og einnig það erfiðasta við dvölina. Reyndar í mínu tilviki marka þau vel rúmlega helminginn. :) Gleðileg jól til þín líka! :*
Anna - Mér finnst nú bara mjög réttlátt að þú takir aðeins til eftir mig, því að við vitum það báðar vel að þú hefur sjaldan lent í því en aðra sögu er hægt að segja um mig að þrífa eftir þig.. Allavega svona þegar ég er að aðlagast því að þurfa að taka til! :) Haha, ég var líka að horfa á þetta myndband um daginn og það er snilli.. Þið eruð snillar! Í mínum augum hefur það aldrei verið neitt vafa mál að við séum fyndnar!
Tóti - Já, jólin verða sko ekki söm í burtu frá ykkur. Takk samt fyrir að senda mér pakka brósilíus! :* Auknar líkur á möndlugjöfinni er reyndar stór plús, njóttu hans!
Alma - Hvað er þetta.. er eitthvað skemmtilegra enn að þrífa upp eftir mig?! Elska þig alveg líka sko. Nýtum jólafríið þitt í að vera fyndnar saman á skype!
Mamma - Þó ég eigi eftir að sakna margs um jólin þá held ég einhverra hluta vegna að ég eigi ekki eftir að sakna lakkríssögunnar þinnar.. Hún er samt alveg góð sko! Ætli Hjörtur fari ekki að rúlla augunum, við höfum nú eytt það mörgum jólum saman að hann bara hlýtur að fara að finnast sagan þreytandi. Svo er náttúrulega líka góð hugmynd að bjóða Ölmu yfir þá geturu reitt af þér sögurnar og brandarana og einhver hlær með þér, hehe! ELSKA ÞIG!!
Hugrún - Takk æðislega fyrir kommentið, rosalega gaman að vita af fólki sem er að lesa það sem ég er að gera hérna! :)
Við amma Margrét sendum þér innilegar óskir um gleðileg jól í sólinni í Gvatemala. Eins og vanter hefur allt verið með seinni skipunum hér, jólasteikin borðuð milli 10 og 11 og nú að verða 2 að nóttu vorum við að opna síðustu pakkana. Það var eins með undirbúninginn það fór smáræði í póst lil þín sem þú færð líklega undir vorið en kemur vonandi ekki að sök.
Njóttu jólanna elsku Guðrún, og til hamingju með árangurinn í prófunum, fótboltanum og öllu öðru,
kv. úr Landakoti,
Eyda og amma.
En allavega, gleðileg jól :*
p.s. Sendi þér e-mail..;)
þú kemur heim fyrr en þig grunar;) neinei
Elska þig:)
Og skype! áður en ég fer á ak og kemst ekki á skype!
og líka alveg ást og eitthvað
p.s. ég fór til læknis í dag sem var ábyggilega yngri en ég, eða hún leit allavegana út fyrir það. Þetta var stelpa. Það var vandræðalegt
