Gleðilegt nýtt ár.
Jæja, þá eru jólin yfirstaðin og löngu kominn tími á blogg.
Jólin voru ekki mikið eins og ég á að venjast en engu að síður alveg ótrúlega kósý.
22. desember hittumst við öll fjölskyldan heima hjá einni frænkunni og borðuðum góðan mat og skiptumst á gjöfum. Mamma sendi mér möndugjöf svo að við ákváðum að það yrði skemmtilegra að borða möndlugrautin öll stórfjölskyldan heldur en bara við 3 heima og hann sló svona líka í gegn og flestir fengu sér ábót eftir að leiknum lauk, gjöfin sló líka í gegn en það var spilastokkur með íslensku jólasveinunum.. Allir voða öfundsjúkir yfir því að við íslensku nautnaseggirnir höfum 13 jólasveina á meðan þau hafa bara einn.
Á þorláksmessu fórum við svo aftur heim til el Puerto og ég fór með fótboltaliðinu mínu að spila í öðrum bæ rétt hjá.. Það var rosa gaman, fórum í pick up og sátum allar í klessu á pallinum, spiluðum svo 7 manna bolta og eftir leikinn var dansiball. Þegar ég kom svo heim um kvöldið var verið að undirbúa jólamatinn sem kallast tamales og er svona gummsdeig úr maís með sósu, kjöti, ólívu, möndlum og þurrkuðum plómubita vafið inn í bananablað.. Samt skárra en það hljómar.

Á aðfangadag byrjuðum við svo daginn á því að borða tamales og chilluðum svo bara eins og á hverjum öðrum degi.. Ég og Marisa gerðum reyndar "El nacimiento" sem er jólasiður kaþólikka en þá raða þeir litlum fígúrum upp sem sýna fæðingu jesús. Okkar fæðing var rosa flott, með foss og öllu. Set inn myndir bráðum. Svo talaði ég við elsku mömmu mína, Tóta bróður og Hjört í rúma 2 tíma á Skype sem var ekkert smá notarlegt. Um kvöldið settumst við svo til borðs ógreidd og óuppáklædd eins og á hverju kvöldi, horfðum svo á sjónvarpið og þegar líða fór á kvöldið sprengdum við smá flugelda og opnuðum svo pakka. Siðurinn hérna er að gera það klukkan 12 en við vorum orðin svo þreytt svo að við flýttum bara í því.. Takk allir sem sendu mér pakka og kort, er ekkert smá ánægð með þetta allt! Spiluðum svo víkingaspilið sem mamma gaf Coco þangað til að við gátum ekki meira.
Á jóladag fórum við svo til Guate í afmælisveislu hjá Xime sem varð 20 ára. Hún á svo tvær systur og foreldrar þeirra buðu mér að vera hjá þeim í nokkra daga til þess að geta umgengist krakka á mínum aldri. Um kvöldið fórum við svo út á lífið og ég skemmti mér frábærlega með þessum stelpum og vinum þeirra. Næstu dögum eyddum við svo í það að versla og spóka okkur um borgina, fara í bíó og liggja heima í leti. Þær eiga líka ótrúlega krúttlega foreldra og þau kalla mig alltaf dóttur sína og sögðu við mig að núna eigi ég 2 heimili hérna í Guatemala. Húsið sem þau búa í er líka geðveikt og allar eiga þær sitthvort sjúka herbergið með eigin fataherbergi og baðherbergi!! Ég er núna að lifa æskudraumnum mínum, að eiga systur á svipuðum aldri sem deila fötum og hlutum. Ég er samt strax búin að komast að því að það er ekki eintómur draumur því að það kallar á rifrildi að deila hlutum. Mér líður samt alveg ótrúlega vel hjá þessu fólki og svo góð tilbreyting að umgangast folk á mínum aldri og vera hérna í borginni.
30. desember fórum við svo öll til el Puerto og eyddum saman áramótunum þar. Ströndin var fullt af fólki og partíum, eitthvað annað en ég hef vanist síðustu 5 mánuðina. Um kvöldið puntuðum við okkur og klæddum okkur í hvít föt og skelltum okkur í "White-party" á ströndinni.. Ekkert smá mikið af fólki og ótrúlega gaman! Daginn eftir lágum við svo bara í leti á ströndinni og sleiktum sólina svo fór ég um kvöldið í heimsókn til einnar frænku sem var í strandarhúsinu sínu, þar voru þau búin að kveikja eld og við sátum í kringum hann og sungum okkur inn í nýja árið, sprengdum svo flugelda og höfðum gaman. Ég fór svo heim um hálf eitt og við stelpurnar gerðum okkur til og fórum svo í áramótapartý.. Örugglega bestu áramót sem ég hef átt, þrátt fyrir að vera í burtu frá vinum og vandamönnum! Komum svo heim klukkan 9 um morguninn og sváfum nýársdaginn næstum því af okkur.

2.janúar fórum við svo öll aftur til Guate og ég, Marisa og Coco fórum í afmæli til "ömmu" minnar og svo í matarboð til eins frænda.. Komum svo ekki heim fyrr en seint og fórum á fætur fyrir 7 og þá tók við örugglega versti dagur lífs míns.. Nei okei, ég er að ýkja en þetta var ótrúlega erfiður dagur. Við allavega ákváðum að fara að túristast um borgina og skoða fæðingar (fæðingar Jesús, eins og ég talaði um fyrr). Við fórum niður í miðbæ eldsnemma um morguninn, sem var reyndar gaman því að ég hafði aldrei komið niður í miðbæinn, og þar beið okkar lítill krúttlegur samkynhneigður Karl, örugglega með loðnari bringu en han Hjörtur stjúpi minn sem kíktu svona skemmtilega upp úr ælugulu skyrtunni hans. Við tróðum okkur svo upp í lítinn gamlan strætu með 50 öðru fólki og lögðum af stað í leiðangur. Fæðingarnar (vá, þetta hljómar asnalega á íslensku) voru rosa flottar flestar og mér fannst ótrúlega áhugavert að skoða þetta en þar sem að mest megnið af ferðarvinum mínum voru eldriborgarar, þar af einn í hjólastól og fæðingarnar voru í heimahúsum og gátu alltaf bara farið 5-10 inn í einu, gekk þetta óheiftarlega hægt og skoðuðum við bara 10 á næstum því 9 klukkutímum. Ég hef aldrei verið þekkt fyrir að vera rosalega þolinmóð manneskja og þar að auki var ég ótrúlega þreytt, með höfuðverk og að fá nýjan jaxl. Strætóinn sem færði okkur á milli var líka rosa tryllitæki, með hörðum sætum og pissulykt og strax eftir aðra fæðinguna gaf han sig og fór ekki af stað fyrr en að við tókumst öll saman og ýttum honum af stað. Svo um kvöldið komu Annie og Edgar, hinir gvate-foreldrar mínir, að sækja mig og ég er búin að vera hérna hjá þeim síðan þá, bara slappa af með stelpunum á meðan þær eru ennþá í fríi. Þær eru líka strax byrjaðar að plana ferð til Íslands og fór gærkvöldið allt í það að skoða myndbönd um Ísland og kanna flugferðir!
Núna í janúar er svo kominn tími til þess að ég fari aftur úr landinu til þess að fá stimpil í vegabréfið mitt og er stefnan tekin á Mexico aftur. Svo í febrúar ætlum við að reyna að ferðast, sjá Tikal sem er staður með rústum eftir Maya-indíánanna og fleiri fallega staði hérna í Guatemala. :)
Annars þá styttist óðum í endalok ævintýrisins hérna í Mið-Ameríku.. Stefni á að koma heim í mars-apríl, ætla að fljúga til New York og hitta mömmu þar og komum svo saman heim á klakan eftir nokkra daga þar. Það verður svo gott að koma heim og knúsa ykkur öll!
Fullt af nýjum myndum sem ég á eftir að setja inn og ég ætla að vinna í því næstu daga.
ADIOS.
Djöfull lítur þetta illa út þarna jólamaturinn, en var örugglega góður eða eitthvað.. ehh. Ég ætla ekki einu sinni að segja hvað þetta minnir mig á.
En ég er með slúður fyrir þig núna!! Er búin að banna öllum að segja þér því ég er alltaf seinust með fréttirnar. Ég verð örugglega mikið á msn þessa dagana því það er prófatíð ,þú veist hvað það þýðir. Msn og facebook fá að finna fyrir því.
Okei ég er byrjuð að rambla.
ELSKA ÞIG
Láttu mig vita þegar þú ert á msn.
Hlakka til að sjá þig
o.s.frv.
:*:*:*
Gaman að lesa bloggin þín Guðrún, þú ert alltaf að bralla eitthvað sniðugt..!En annars skil ég þetta vel með jólasveinana, 13 er allveg svolítið skrítið en stutt eftir hjá þér í raun og bara gangi þér ótrúlega vel og vertu dugleg að ferðast og svalaðu þessari útþrá þinni;)
sjáumst á þessu ári;)
Ef þetta hefðu verið einhverjir aðrir sem þú hefðir þurft að bíða eftir hefðiru örugglega verið farin að stappa niður fótunum :P
Og vá, loðnari en Hjörtur á birngunni ? það er nú ekkert smáræði.. þar sem hann rambar um húsið í engu nema ullarpeysunni sinni og nællum og er aldrei kalt.
Og ég verð að vera sammála önnu með jólamatinn þinn og ég veit að hann minnir okkur á nákvæmlega það sama, sem er ekki fallegt.
En ég sakna þín og tríósins að vera saman inní herberginu mínu í prófatíð í "karíókí" við hairspray !
Lovjú og láttu mig vita þegar þú ert inná msn beibíkeik :*
ps. vá hvað þetta eru allir flottir kjólar á myndinni !
alltaf gaman að lesa bloggið þitt, ert svolítið góður penni ;)
love ;**
Mamma - Hahaha, mamma þú þekkir mig of vel! Elska þig líka :* Sé þig eftir 79 daga!! Anna - Þessi réttur er miklu betri en hann lítur út fyrir að vera.. Samt alls ekki uppáhaldið mitt hérna. Þeir bestu líta nú samt ekkert mikið betur út, hehe. Greinilegt að ég hef þroskast , held að allir viti að ég hefði ekki lagt þetta gumms inn fyrir mínar varir fyrir 5 mánuðum!
Takk annars fyrir alllt slúðrið, hehe.. ELSKA ÞIG LÍKA!! ;*
Jenný - Vá, skrítið að segja það en já, sjáumst á þessu ári sætust. :D
Alma - Haha, mér tókst reyndar að halda fætinum kyrrum en dæsti alveg meira en nóg þennan dag. Já, ég hélt að ég myndi aldrei hitta mann með loðnari bringu en Hjörtur en mér skjátlaðist stórlega! Ég sakna líka tríósins og allra uppátækjana okkar, bara 84 dagar þangað til!! :D Elska þig líka, svo mikið. :*
Ingi - Ég ætla svo að elda eitthvað gummst fyrir þig þegar ég kem heim og þú skalt sko gjöra svo vel að borða það. ;) Sakna þín svo lover!
vildi bara rétt segja hæ, og ég elska að þú hafir sagt lover hérna fyrir ofan!
kv. marta :*
Gaman að heyra að þér hafi fundist svona gaman um áramótin :)Hljómar ekkert illa hvernig jólin voru samt þarna úti. nema kannski maturinn sem er svoldið skrítinn en ekki dæma bókina af kápunni right?
ég sakna þín þarna úti og mér fynnst alltaf gaman að lesa bloggið þitt :D
en hafðu það sem allra best guðrún mín,,
kveðja frá kanarý ;)

oh...það er svo gaman að lesa bloggin þín. Elska þig ástarengill. mamma.